Námskeiðslýsing
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttendur að
Hafa heildstæða mynd af notkun upplýsingatækni og tölva í skólastarfi og þeim samvirkandi þáttum innan skóla og utan sem einkenna og móta þá menningu og notkunarhefðir sem skapast við innleiðingu þeirra (technology integration).
Hafa þekkingu á hvernig tölvutengd færni og viðhorf nemenda þróast og tölvunotkun þeirra innan skóla og utan.
Hafa þekkingu á möguleikum upplýsingatækni til að efla nám og kennslu.
Geta nýtt nýjustu upplýsingatækni í hugmyndavinnu og til öflunar og úrvinnslu gagna vegna fræðilegra skrifa.
Verða virkir þátttakendur í náms- og fagsamfélagi, áhugasamir um að vinna þróunarstörf á sviði upplýsingatækni, að skoða og greina skóla- og uppeldisstarf með opnum og gagnrýnum huga og að miðla reynslu sinni til annarra.
Inntak / viðfangsefni
Áhrif upplýsingabyltingarinnar á menningu, uppeldi, menntun og skólastarf.
Nemendur, færni þeirra og/eða læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni og tölvunotkun innan og utan skóla.
Námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi.
Skilgreiningar og kenningar sem tengjast upplýsingatækni í námi og kennslu.
Innleiðing tölva og upplýsingatækni í skólastarf (technology integration), kennsluhættir, símenntun kennara, hugbúnaður og stafrænt námsefni, félagslegir þættir.
Vinnulag
Lestur og umræður um námskrá og stefnumótun, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þátttakendur miðla reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leitast verður við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Námsmat
Umræðuframlög (að hluta til unnið í hóp að hluta til einstaklingsvinna), 25%
Efnisleit og kynningar einstaklinga eða áhugahópa (verkefni má að hluta til vinna í hóp en það er ekki skylda), 25%
Verkefni sem byggist á gagnasöfnun (einstaklings- eða hópverkefni), 25%
Heimildaritgerð (einstaklingsverkefni), 25%.
Tengja má síðasttöldu verkefnin tvö í eitt stórt 50% verkefni.
Lesefni [Ef hægt er.]
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku. Heiti námskeiðs
Fjarnám og kennsla
Braut / námsleið / kjörsvið
Upplýsingatækni og miðlun
Nemendur þekki sögu og þróun fjarnáms og –kennslu.
Nemendur þekki möguleika í skipulagningu fjarnáms með mismunandi kennsluaðferðum og tæknibúnaði.
Nemendur þekki mismunandi útfærslur á hvernig net/-fjarnámi er blandað við staðnám.
Nemendur kunni skil á lykilhugtökum, þekki helstu kenningar á sviðinu og geti beitt þeim í fræðilegri umfjöllun.
Önnur markmið verða skilgreind í samræmi við þarfir og áhuga þátttakenda á námskeiðinu.
Inntak / viðfangsefni
Fjarnám- og kennsla, blandað nám, dreifnám, netnám: þróun og rannsóknir
Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitanám) og annað stærra einstaklingsverkefni.
Námsmat
Hópverkefni byggt á aðferðum lausnaleitarnáms (problem-based learning): 25%. Framlög á Neti t.d. umræðuframlög, innlegg í gagnabanka, bloggfærslur (einstaklingsvinna): 25%. Lokaverkefni: Heimilda- og/eða rannsóknarritgerð (einstaklings- eða paravinna) eða þróunarverkefni s.s. hönnun fjarnámsáfanga með greinargerð: 50%.
Lesefni [Ef hægt er.]
Simonson, M., Smaldino, S., Albright, M. og Zvacek, S. (2006). Teaching and learning at a distance: Foundations of Distance Education (3ja útgáfa). Upper Saddle River, New Jersey: Prentice Hall.
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.
Heiti námskeiðs: Margmiðlun til náms og kennslu
Braut/námsleið/kjörsvið: Sérhæfing í framhaldsdeild – Upplýsingatækni og miðlun
dregið fram kosti gagnvirkni og margmiðlunar við nám og kennslu
metið margmiðlunarefni á skipulegan og gagnrýninn hátt
lýst hönnunarferlum að baki námsefni með margmiðlunarsniði
sýnt tök á ýmsum aðgengilegum verkfærum til margmiðlunar
bent á leiðir til að fella vinnu með slík verkfæri að skólastarfi
skipulagt, útfært og metið efnisgerð nemenda í leik- og grunnskóla
byggt á nokkurri reynslu af gerð margmiðlunarefnis.
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Fjallað verður um gagnvirka margmiðlun á fræðilegum grunni, einkum með tilliti til náms og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, handritsgerð, hönnunarferli og notendaprófanir. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Kynnt verða ýmis verkfæri og hugbúnaður til hljóðvinnslu, myndvinnslu og margmiðlunar. Nemendur móta hugmyndir um vinnulag og notkun verkfæra til margmiðlunar í skólastarfi. Auk smærri einstaklingsverkefna vinna nemendur einir eða fleiri saman að gerð margmiðlunarefnis af einföldum toga, gjarnan með stærri verk í huga.
Námsmat: Nemendur hafa töluvert val um verkefni. Nemendur bregðast við völdum verkum annarra nemenda og ræða viðfangsefni námskeiðsins. Kennari veitir skriflega umsögn um verkefnin og metur framlag nemenda til einkunnar.
Lesefni: Valið efni um gagnvirka margmiðlun, efnisgerð og samþættingu námsgreina í skólastarfi, stuðning skólasafna og smiðjur í skólum.
Heiti námskeiðs: Nám og kennsla á Netinu Braut/námsleið/kjörsvið: Sérhæfing í framhaldsdeild – Upplýsingatækni og miðlun Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið): Skyldunámskeið
Misseri: vor ? Stærð námskeiðs í einingum: 5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda: Enginn
Forkröfur: Engar
Námskeiðslýsing
Þekkingar- og færnimarkmið:
Að nemendur geti
útbúið fræðsluefni, gagnvirkt efni og fræðilegt efni á Netinu á ýmiss konar formi
unnið undir leiðsögn að rannsóknar- og þróunarverkefnum tengdum netmiðlum
skipulagt námsumhverfi og hannað námsferli á vef þar sem námsefnið, vinnusvæði nemenda, námsmat, samskipti og hópvinna mynda heild
fjallað um rannsóknir og tilraunaverkefni um Netið í skólastarfi og tengt nýja tækni kenningum um nám og kennslu
skipulagt ýmis konar nýtingu á Neti í skólastarfi s.s. fjarnám, blandað nám, heimanám, tómstundanám o.fl.
>
> Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
>
Viðfangsefni námskeiðins er rannsóknir, þróunarverkefni og athuganir á miðlun, framsetningu og skipulagi námsefnis og námsumhverfis á Interneti. Námskeiðið er verkefnamiðað og á verkstæðisformi. Námskeiðið er að miklu leyti með fjarkennslusniði þannig að nemendur og leiðbeinandi koma saman á nettímum/netfyrirlestrum í hverri viku og nota þess á milli ýmsa netmiðla til samskipta. Einnig er gert ráð fyrir einhverjum staðbundnum tímum í tölvuveri en það verður valfrjálst.
Leitast verður við að nota kennsluaðferðir sem byggja á veftækni og nýjum netverkfærum og þjálfa þannig nemendur til vinnu í slíku umhverfi. Námskeiðið skiptist í námslotur sem m.a. fjalla um
>
** hönnun á kennsluvefjum/vefsíðugerð
námsumhverfi á vefnum
netsamskipti
nýtingu í skólastarfi.
>
> Námsmat
þátttaka nemenda og verkefni á stafrænu formi (eportfolio) eru grunnur til námsmats.
>
> Lesefni: Valið efni á vef tengt viðfangsefnum námskeiðsins Heiti námskeiðs: Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla? Tölvur í starfi með fötluðum Braut/námsleið/kjörsvið: Sérhæfing í framhaldsdeild – Upplýsingatækni og miðlun
Nemendur geti
tekið þátt í alþjóðlegum og innlendum verkefnum sem miða að því að miðla þekkingu og færni um upplýsingatækni í námi og kennslu.
undirbúið, skipulagt eða vinnið með öðrum hætti að þróunarverkefni (innanlands eða erlendis) sem miðar að því að auka menntun og möguleika hópa sem standa höllum fæti í þekkingarsamfélaginu
greint aðstæður mismunandi aðstæðum hópa, ríkja og landsvæða til að taka þátt í þekkingarsamfélagi nútímans og þekki til alþjóðlegra og norræna þróunarverkefna og framkvæmdaáætlana sem miða að því að auka þátttöku allra í upplýsingasamfélaginu og brúa hina stafrænu gjá
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Markmiðið er að virkja og þjálfa nemendur til að taka þátt í alþjóðlegum og innlendum verkefnum sem miða að því að miðla þekkingu og færni um upplýsingatækni í námi og kennslu. Námskeiðið er skipulagt með staðbundinni lotu og fjarnámi. Hugsanlega verður farin vettvangsferð í tengslum við námskeiðið.
Námsmat:
Byggist á þátttöku og virkni í samstarfsverkefnum og verkefnaskilum. Nemendur vinna að einu stóru þróunarverkefni á námskeiðinu þar sem þeir vinna með öðrum að þarfagreiningu, stöðulýsingu, leit að samstarfsaðilum, framkvæmdaáætlun o.fl.
Miðlun, menntun og samfélag
Þekkingarmarkmið
Nemendur
· kunni skil á helstu hugtökum og kenningum í menningarfræðum og táknfræði
· þekki til táknvísi og hlutverks hennar í skólastarfi
· læri um skapandi hugsun og þátt sköpunar í námi
· átti sig á tenglsum (fjöl)miðla við menntun og samfélag
Færnimarkmið
Nemendur
· geti beitt hugtökum úr ofangreindum fræðum til að ræða um merkingarsköpun, samskipti og skilning
· geti tengt táknvísi og fjölbreytta miðlanotkun við nám í ýmsum greinum
· geti hagnýtt kenningar um miðlun og frumlega hugsun við skipulagningu á þeim verkefnum nemenda sem reyna á sköpun og miðlun
· geti valið tjáningarform, t.d. bækling eða stuttmynd, sem henta þeim sem ætla að tjá sig og því efni sem ætlun er að koma á framfæri
· geti hagnýtt efni úr fjölmiðlum við kennslu, m.a. í því skyni að ungmenni átti sig á því með hvaða hætti þeir hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra og hugmyndir um veruleikann
Inntak / viðfangsefni
Nemendur lesa valdar greinar um tengsl miðla við nám, tjáningu, skilning og merkingarsköpun. Jafnframt búa þeir til efni og hafa þá til hliðsjónar þær kenningar og það vinnulag sem lýst er í greinum og kennslustundum. Vettvangsnám á námskeiðinu tengist þeim stofnunum og fyrirtækjum í samfélaginu sem fást sköpun og (fjöl)miðlun.
Vinnulag
Annars vegar fer fram umræða um efni greina og nemendur jafnt sem kennari gera grein fyrir aðalatriðum í þeim. Jafnframt skrifa nemendur leiðarbók þar sem þeir halda til haga hugleiðingum sínum um efni námskeiðsins. Hver nemandi vinnur miðlunarverkefni, t.d. myndband eða ljósmyndasögu, til að tengja saman fræði og framkvæmd.
Námsmat
Kennari og nemendur leggja mat á verkefni og vinnu við þau.
Rammi fyrir námskeiðslýsingu
Heiti námskeiðs
Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun
Braut / námsleið / kjörsvið
Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Skyldunámskeið
Misseri
Haust?
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
40
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttendur að
Inntak / viðfangsefni
Áhrif upplýsingabyltingarinnar á menningu, uppeldi, menntun og skólastarf.
Nemendur, færni þeirra og/eða læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni og tölvunotkun innan og utan skóla.
Námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi.
Skilgreiningar og kenningar sem tengjast upplýsingatækni í námi og kennslu.
Innleiðing tölva og upplýsingatækni í skólastarf (technology integration), kennsluhættir, símenntun kennara, hugbúnaður og stafrænt námsefni, félagslegir þættir.
Vinnulag
Lestur og umræður um námskrá og stefnumótun, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þátttakendur miðla reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leitast verður við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Námsmat
- Umræðuframlög (að hluta til unnið í hóp að hluta til einstaklingsvinna), 25%
- Efnisleit og kynningar einstaklinga eða áhugahópa (verkefni má að hluta til vinna í hóp en það er ekki skylda), 25%
- Verkefni sem byggist á gagnasöfnun (einstaklings- eða hópverkefni), 25%
- Heimildaritgerð (einstaklingsverkefni), 25%.
Tengja má síðasttöldu verkefnin tvö í eitt stórt 50% verkefni.Lesefni [Ef hægt er.]
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.
Heiti námskeiðs
Fjarnám og kennsla
Braut / námsleið / kjörsvið
Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Valnámskeið
Misseri
Vor?
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
40
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið
Inntak / viðfangsefni
Fjarnám- og kennsla, blandað nám, dreifnám, netnám: þróun og rannsóknir
Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitanám) og annað stærra einstaklingsverkefni.
Námsmat
Hópverkefni byggt á aðferðum lausnaleitarnáms (problem-based learning): 25%. Framlög á Neti t.d. umræðuframlög, innlegg í gagnabanka, bloggfærslur (einstaklingsvinna): 25%. Lokaverkefni: Heimilda- og/eða rannsóknarritgerð (einstaklings- eða paravinna) eða þróunarverkefni s.s. hönnun fjarnámsáfanga með greinargerð: 50%.
Lesefni [Ef hægt er.]
Simonson, M., Smaldino, S., Albright, M. og Zvacek, S. (2006). Teaching and learning at a distance: Foundations of Distance Education (3ja útgáfa). Upper Saddle River, New Jersey: Prentice Hall.
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.
Heiti námskeiðs: Margmiðlun til náms og kennslu
Braut/námsleið/kjörsvið: Sérhæfing í framhaldsdeild – Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið): Valnámskeið
Misseri: 4. misseri?
Stærð námskeiðs í einingum: 5
Hámarksfjöldi nemenda: Enginn
Forkröfur: Engar
Námskeiðslýsing
Þekkingar- og færnimarkmið:
Nemendur geti
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Fjallað verður um gagnvirka margmiðlun á fræðilegum grunni, einkum með tilliti til náms og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, handritsgerð, hönnunarferli og notendaprófanir. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Kynnt verða ýmis verkfæri og hugbúnaður til hljóðvinnslu, myndvinnslu og margmiðlunar. Nemendur móta hugmyndir um vinnulag og notkun verkfæra til margmiðlunar í skólastarfi. Auk smærri einstaklingsverkefna vinna nemendur einir eða fleiri saman að gerð margmiðlunarefnis af einföldum toga, gjarnan með stærri verk í huga.
Námsmat: Nemendur hafa töluvert val um verkefni. Nemendur bregðast við völdum verkum annarra nemenda og ræða viðfangsefni námskeiðsins. Kennari veitir skriflega umsögn um verkefnin og metur framlag nemenda til einkunnar.
Lesefni: Valið efni um gagnvirka margmiðlun, efnisgerð og samþættingu námsgreina í skólastarfi, stuðning skólasafna og smiðjur í skólum.
Heiti námskeiðs: Nám og kennsla á Netinu
Braut/námsleið/kjörsvið: Sérhæfing í framhaldsdeild – Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið): Skyldunámskeið
Misseri: vor ?
Stærð námskeiðs í einingum: 5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda: Enginn
Forkröfur: Engar
Námskeiðslýsing
Þekkingar- og færnimarkmið:
Að nemendur geti
- útbúið fræðsluefni, gagnvirkt efni og fræðilegt efni á Netinu á ýmiss konar formi
- unnið undir leiðsögn að rannsóknar- og þróunarverkefnum tengdum netmiðlum
- skipulagt námsumhverfi og hannað námsferli á vef þar sem námsefnið, vinnusvæði nemenda, námsmat, samskipti og hópvinna mynda heild
- fjallað um rannsóknir og tilraunaverkefni um Netið í skólastarfi og tengt nýja tækni kenningum um nám og kennslu
- skipulagt ýmis konar nýtingu á Neti í skólastarfi s.s. fjarnám, blandað nám, heimanám, tómstundanám o.fl.
>> Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
>
- Viðfangsefni námskeiðins er rannsóknir, þróunarverkefni og athuganir á miðlun, framsetningu og skipulagi námsefnis og námsumhverfis á Interneti. Námskeiðið er verkefnamiðað og á verkstæðisformi. Námskeiðið er að miklu leyti með fjarkennslusniði þannig að nemendur og leiðbeinandi koma saman á nettímum/netfyrirlestrum í hverri viku og nota þess á milli ýmsa netmiðla til samskipta. Einnig er gert ráð fyrir einhverjum staðbundnum tímum í tölvuveri en það verður valfrjálst.
- Leitast verður við að nota kennsluaðferðir sem byggja á veftækni og nýjum netverkfærum og þjálfa þannig nemendur til vinnu í slíku umhverfi. Námskeiðið skiptist í námslotur sem m.a. fjalla um
>** hönnun á kennsluvefjum/vefsíðugerð
- námsumhverfi á vefnum
- netsamskipti
- nýtingu í skólastarfi.
>> Námsmat
- þátttaka nemenda og verkefni á stafrænu formi (eportfolio) eru grunnur til námsmats.
>> Lesefni: Valið efni á vef tengt viðfangsefnum námskeiðsins
Heiti námskeiðs: Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla? Tölvur í starfi með fötluðum
Braut/námsleið/kjörsvið: Sérhæfing í framhaldsdeild – Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið): Valnámskeið
Misseri: vor?